Mér finnst einmitt að það sé fín harka í t.d. Bush, Smashing Pumkins og Black Sabbath (ég ætti að fara að fordæmi sumra og fá nýtt nick: BCorgan… :) en það er samt enn melódía fyrir mig þarna, sérstaklega hjá fyrrnefndu böndunum. án melófíunnar virðist úthaldið hjá mér minnka… Sama um hve mikla snilld er að ræða. Auðvitað er þetta bara huglæg og persónuleg skoðun!
Þetta er einmitt málið. Freddie Mercury tekur örugglega flesta þá sem ég nefndi í upprunalegu greininni í nefið. Ég bara fíla hann ekki, en ég fíla Dylan, Ozzy og Billy Corgan. Þegar þeir syngja eitthvað sperrast eyrun á mér! 'Nuff said (í bili)
Tjah… Í öllum tíu sætunum var atvik sem leiddi til dauða þíns… En þú plöggaðir líka Leslie Nielsen sem viable Shatner alternative og ENGINN messar við Shatner! ;)
Ég væri til á að sjá happy ending í þessu máli… Buffy serían rennur sitt skeið og Buffy með hjálp vina sinna gerir þeim Angel (og Buffy ekki öllum vinunum!!!) kleift að njótast að lokum. Angel serían heldur svo eitthvað áfram og hún SMG mín kemur öðru hverju með guest appearance. En það væri í fullkomnum heimi… :)
Erfitt val. Cordy-Quotes eru í miklu uppáhaldi hjá mér, hún stelur senunni í Angel. Þessi með “You're a vampire!” er ekki alveg jafn góð á blaði… “…you ran like a girl.” er snilld. En Buffy að diskútera impulsiveness tekur 1. sæti þennan daginn!
Turbo S? Ekki Turbo R? Veistu hver munurinn er? Þetta er cool bíll sem kostar skít og kanil. Rock solid, en ef eitthvað bilar… ;) Ég vill hitta eigandann og taka í spaðann á þeim smekkmanni!
Hmm… Kumho? Ég segi bara, ef þér líst vel á, then go 4 it! Það þýðir ekki bara að láta aðra segja hvað á að gera, þú virðist líka hafa skoðað málið vel og komist að úthugsaðri niðurstöðu. Good job.
Þú mátt alveg dömpa á mig maður ;) Maður býst við því ef maður pælir í að kaupa Ka! Það sem ég meinti var bara að mig vantaði ekki að heyra að Ka væri asnalegur. Ég þekki þessa bíla vel. Lookið sleppur (þó sum sjónarhorn verði alltaf vandræðaleg) ef bíllinn er sanseraður. Hefur eitthvað með plastið að gera… Auðvitað er þessi ekki sanseraður… :( Ef við gleymum útliti þá eru eftirfarandi atriði það sem helst draga Ka niður: #1 ekkert hanskahólf #2 sæti mættu vera betri #3 hvað meinar Ford með...
Þetta vekur voða áhuga. Í fyrsta lagi er Opel Corsa versta gerð af druslu og flestir sendlar líta á það sem atvinnustolt að nauðga þeim. Corsa fær útreið í þessum geira og er einmitt bíllinn sem má ekki við þannig. Ka fær reyndar ekki heldur mikla virðingu en í þessu tilfelli hefur stjórnandi staðarins haft grimmt augnaráð og hvassar tennur, góður piltur reyndar m.v. mín kynni af honum. Og nei, það er engin bræla. Hann hefur verið þrifinn hátt og lágt og lakkið massað þannig að hann lítur út...
Látum bara nægja að segja að ég sé innanbúðarmaður í keðjunni og treysti umsjónamanni bílanna til að vera ekki að fokka með mig. Ég er eiginlega að fara að skrifa ávísun fyrir útborguninni, því bíllinn lítur þannig út að ég trúi ekki að hann hafi verið í höndunum á pizzasendlum… Trust me, I've been one myself… Þótt ég hafi ekki persónulega nauðgað bílunum :)
Fín grein! Meira af svona fróðleiksmolum, takk. Fleiri bílar sem hafa náð Cd 0,29 eða lægra: Lotus Elite ('59) Lotus Omega Cd 0,28 ('??) GM EV1 Cd 0,?? ('??) Tjah, enginn er fullkominn :)
Afþví, bebecar, að fólk sem á þennan pening eru alltof oft læmingjar sem elta snobbmerki og geta fengið 911 á lægra verði. Ekki að ég vildi ekki frekar feita non-turbo útgáfu af 911/993 en NSX. NSX er samt alger laumu-Ferrari sem maður getur keyrt day-in/day-out í makindum og vandræðaleysi á milli þess sem maður reynir að hækka gengi hlutabréfa í Shell og Yokohama.
Ertu viss HelgiPalli? Mér skilst að það sé frekar auðvelt að keyra Viper GTS nokk hratt ef ökumaðurinn kann eitthvað. Ég þyrfti að hugsa mikið ef ég ætti að velja milli þessara bíla. Ef ég sjálfur ætti peninginn sem ætti að eyða tæki ég samt strax Z06!
Stakka: eins og ég sagði þá má láta svona efni inn… á korkinn! Ástæðan fyrir því að ég sendi þessa grein ekki beint á korkinn var af því að mig langið til að sjá umræðu einmitt um þessi greina/korka mál. Ég held að gróflega þriðjungur af öllum “greinum” sem mér hafi borist hafi ég sent á korkinn. Ég spyr því: Hefur einhver tekið eftir því? Reyndar er mér nákvæmlega sama hvað fólki finnst um greinar eftir mig, ég skrifa þær af því ég hef áhuga á þessu. Í stuttu máli, Like it or Lump it!
Þú ert verulega obsessed. Þetta væri eins og þú þyldir ekki homma en værir í stöðugu sambandi með Páli Óskari. Látið sálgreina þennan mann, gæti verið áhugavert.
Þokkalegur í Heat líka en HRÆÐILEGUR í þeirri vondu mynd The Relic. Hve lágt eru menn komnir þegar að svalasta setningin frá kvenhetjunni er stolið úr Hellraiser III? P.S. Terry Farrell rokkaði í Hellraiser III ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..