Já, mjög. Mér fannst hún mjög skemmtileg í fyrsta skipti þegar ég sá hana og var þá hugfanginn af því hvernig hún notaði þrívíddina til þess að skapa dýpt í myndina, frekar en að búa til hluti sem sveiflast út úr tjaldinu. Mér fannst sagan og persónusköpunin ekki uppá marga fiska, en ég labbaði sáttur út úr bíóinu. Síðan fór ég aftur á hana og þegar maður hafði séð alla flottu grafíkina áður þá var hún hundleiðinleg. Flott, en leiðinleg.