Af minni eigin reynslu myndi ég mæla með að þú myndir prófa BodyCombat. Það er prógram unnið af LesMills og byggist á bardagaíþróttum í takt við skemmtilega tónlist. Þetta er í anda MMA og byggist á bardagaíþróttum á borð við karate, boxi, taekwondo, tai chu og muay thai. Prógramið er byggt upp með upphitun, skiptist á milli combat og power training og endar á styrktarþjálfun og teygjum. Ég hef virkilega góða reynslu af þessum tímum, þeir eru virkilega skemmtilegir og mjög góður andi í þeim....