Viðhorfið hjá þér er auðvitað í algjöru rugli en ég skal samt benda þér á einn hlut sem virkar vel, Tabata training. Þetta er ógeðslega erfitt og þú munt örugglega blóta eftir að hafa reynt þetta einu sinni og gera þetta aldrei aftur en það er ekki mér að kenna. Tabata tekur einungis fjórar mínútur, en þessar fjórar mínútur eru mjög erfiðar. Þú velur æfingu sem notar helst svotil allan líkamann(front squats eru t.d. mjög góðar í þetta, sem og Thrusters) og gerir hana í 20 sek, hvílir í 10....