Þú gerir þér grein fyrir að þú ert að lesa allt, allt of mikið í það sem ég sagði, er það ekki? Eins og ef ég kæmi inn í mitt rifrildi einhversstaðar og segði “Rólegir krakkar, anda” og þau héldu að ég væri að segja að maður ætti bara að anda þegar maður væri rólegur. Það er bara absúrd. Það er alveg hægt að skemmta sér án áfengis og ég geri það reglulega og skemmti mér stórkostlega. Það þýðir ekki að það sé ekki skemmtilegra á böllum þegar maður er aðeins í því.