Það er ekki ekta nei, held það sé nylon. Það má reyndar ekki lita það, né slétta eða krulla. Þú færð það alveg slétt í búðinni :) Held þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af litnum, það fæst í mörgum litum. Reyndar smá bögg, að lengjan fer soldið úr hárum og þú verður að fara varlega með að greiða það, en það er gott að greiða það reglulega meðan það er í, því það getur kléprast svolítið saman og flækist og það lítur þá ekki mjög vel út. Þetta er ekki mjög dýrt og frekar einfalt. Gangi þér vel :)