En málið er að það er ekkert að gróa í þessu, þetta er bara þurrt og þykkt lag af húð. Ég er búin að tala við hjúkku og hún heldur að þetta séu bara ofnæmisviðbrögð, ekki sýking. Enda engir vessar eða neytt í þessu sem benda til þess. Proctoseyl er gyllinæðakrem með sterum, ég veit að sumir flúrarar hafa bent á það sem tattookrem. Ég spurði lyfjafræðinginn sem ég vann með út í það og hann ráðlagði mér eindregið frá því að nota það á tattoo. Húðin t.d. þynnist af sterakremanotkun.