Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Karat
Karat Notandi frá fornöld 4.538 stig

Re: Danskir dagar

í Skóli fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Söndag, mandag, tirsdag, onsdag, torsdag, fredag, lördag. Það á að vera danskt ö, ég bara get ekki gert það í tölvunni. Karat.

Re: Mitt gengi

í Sápur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það er ekki hægt ;)

Re: Ljóskúlur

í Dulspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þetta eru bara ljóstruflanir, það þarf ekki mikið til. Þetta gerist á annarri hvorri mynd sem ég tek á stafrænu vélina mína og alveg sérstaklega ef það er dimmt, frekar dimmt eða glampar frá einhverjum ljósum, skiptir ekki máli hvernig ljós. Þetta er ekkert yfirnáttúrulegt.

Re: Ráðagestur hinn Brúni

í Tolkien fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ágætis grein, svolítið stutt, en það er svo sem ekki hægt að skrifa neitt mikið um Ráðagest. Það væri þó gaman að vita eitthvað meira um hann, en ég veit ekki til þess að það sé neitt mikið meira af heimildum um hans tilveru. Það væri samt gaman að heyra eitthvað meira um þessa mynd sem fylgir með. Ég man ekki eftir að hafa séð hana áður. Hvaðan kemur hún?

Re: Hve margir þættir haldiði að hafi verið framleiddir af GL?

í Sápur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Því má bæta við að sú sem leikur Eleni núna leikur bæði í CSI New York og Providence á Skjá einum.

Re: Izzy....

í Sápur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já, Izzy veit að Gus á það. Það er búið að koma fram.

Re: Izzy....

í Sápur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Því þetta er upptaka af fóstrinu frá því hún var í sónar og það sést að hún er komin miklu lengra á leið en hún þykist vera. Hún vill auðvitað ekki að Karl sjái það því þá fattar hann kannski allt.

Re: Atburðir liðinnar viku

í Sápur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég skal gera það ef eitthvað áhugavert verður búið að gerast ;)

Re: Söngvakeppni eða lagakeppni?

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Á íslensku heitir keppnin: “Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva”. Upphaflega var nú bara verið að dæma sjálft lagið. Ekki textann eða flytjandann, föt eða neitt svoleiðis. Núna hefur þetta breyst og er blandað af þessu öllur, sérstaklega eftir að almenningur fór að geta kosið.

Re: Útskriftarferðir (10. bekkur)

í Skóli fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þegar ég var í 10. bekk var engin ferð :( Við fórum ekki heldur að skoða skóla eða neitt.

Re: Serbía og svartfjallaland

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég man ekki einu sinni hvaða lag þetta var eða hvernig söngvarinn leit út. Geturðu komið með einhverja lýsingu svo maður geti reynt að rifja þetta upp?

Re: Textar á vinningslögum í ár, 1, 2 og 3 sæti

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Sammála þér. Danska lagið er æðislegt og söngvarinn var sérstaklega sjarmerandi í keppninni.

Re: Moldóvía

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
www.eurovision.tv ferð í media og svo velurðu video eða audio og svo landið.

Re: Úrslitin í Eurovision

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já, Lettarnir voru ömurlegir. Ég var farin að hugsa “hver sem er að vinna nema þeir” á tímabili.

Re: Keppandi möltu

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Mér fannst hún rosalega góð þessi stelpa. Hún var miklu betri í aðalkeppninni en í undankeppninni. Maður var líka farinn að venjast laginu betur og mér finnst það bara mjög flott. Þetta er svona dæmigert Bylgjulag og ég gæti vel hugsað mér að hlusta á það öðru hvoru. Ég hélt með Danmörku og Noregi en Malta kom tvímælalaus næst hjá mér. Karat

Re: Atburðir liðinnar viku

í Sápur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hmmm, mig minnir nú að hann og Susan hafi verið að tala saman, en ég skal ekki sverja fyrir það, ég man það ekki nákvæmlega.

Re: 3 vikur og greinin mín er ekki ennþá komin...

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Málið er lélegir stjórnendur. Það þarf greinilega að skipta út fólki á þessum bæ.

Re: 16.sæti í forkeppninni :(

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þetta eru þvílík vonbrigði. Ég bar skil þetta ekki. Laginu var spáð svo góðu gengi og mér finnst það bara flott. Ef við verðum með á næsta ári (sem verður nú örugglega) þá verðum við greinilega að gera eitthvað róttækt!

Re: Dominion Stríðið

í Sci-Fi fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Frábær grein :)

Re: Kylie Minouge

í Sápur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það eru engin 20 ár síðan sko.

Re: Hættum í þessari Evróvision vitleysu.

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég er mjög ósammála þér. Danska lagið var alls ekki það versta, það var að mínu mati með þeim betri. Söngvarinn var líka mjög sjarmerandi. Ég er nokkuð viss um að danska atriðið höfðaði mjög til kvenna. Áfram Danmörk :D

Re: Hættum í þessari Evróvision vitleysu.

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þetta var nú ekkert góð íslenska. Þessi keppni útleggst sem Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á góðri íslensku ;)

Re: Veljum norrænt

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ef við fáum að kjósa þ.e.a.s. þó við séum dottin út. Einhver sem veit eitthvað um það?

Re: Selma stóð sig vel

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Danska lagið var líka frábært :D

Re: Ísland

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Selma var frábær. Það hefði mátt vera meira action í dansinum kannski. En lagið heppnaðist mjög vel hjá þeim. Besta lagið hingað til í það minnsta.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok