Þú þarft alls ekkert að vera í nýjum fötum að hausti, alls ekki :). Mér finnst hins vegar best að eyða kanski svona 15-25.000 kalli að hausti í svona þægileg ‘everyday’ föt. T.d. gallabuxur, einlita langerma boli, hettupeysur og annað sem hentar vel í skólanum, og á veturna innan undir jakka/úlpu. Ég eyddi alls ekki svona miklu í fötin fyrir fáeinum árum…það er bara svona núna þegar ég nota langmest af sumarlaununum í föt :)