Jæja, ég fór og keypti mér síðustu Harry Potter bókina áðan. Labbaði síðan út í 10-11 voða glöð og vinkona mín keypti sér eitthvað smá. Svo vorum við að labba aftur í Nexus, og þá keyrir einhver fáviti fram hjá og öskrar endinn út um bílrúðuna. >_< Taka svona fólk, lemja það, flá það, kroppa úr þeim augun og skera úr þeim barkakýlið! >_< Ef það ætlar að spoila getur það ekki allavega verið frumlegt! Núna ætla ég að halda að hann hafi logið. Vá, ég er pirruð, og ef þú ætlar að vera ýkt...