jæja drengir, þá er leikurinn kominn og allir of niðursokknir í að spila til að skrifa nokkuð um hann. Ég er líka of niðursokkin en reyndar í vinnu. Ég reyni að skrifa eitthvað fljótlega. við fyrstu sýn var ég ekki alveg að fíla leikinn, svo skipti ég yfir á 6 stjörnur og þetta er bara hreinasta snilld síðan. Það eina sem út á má setja eru markverðirnir, sem eru stundum ansi skrautlegir (standa og horfa á boltann rúlla rólega í netið/stöng/rétt fram hjá) og innköstin, en núna nennir enginn...