Ég og littlu skátarnir mínir, sem voru að klára 8. bekk, ákváðum frekar að fara á Van Wilder, heldur en Scooby-Doo. Ég hafði aldrei heyrt getið um þessa mynd, hvorki séð trailerin né heyrt um hana, en ég var svo sem til í að fara á hana, af því að gaurinn úr Two guys and a girl, er hreinasti snillingur! Ég hló og hló yfir henni, hún er alveg drep fyndin og ógeðslega atriðið…. það var viðurstyggð. Ég mæli með þessari mynd, fyrir alla sem eru með, já, svona unglingahúmor. Þvílík snilld.