Ég ét ekkert eftir Top Gear, mitt álit á amerískum bílum og vélum hefur alltaf verið lélegt. Verð ég að vera sammála áliti Top Gear manna á amerískum bílum. Finnst mér aflnýtingin vera hræðileg á þeirra vélum. T.d. var á myndasíðunni Pontiac GTO, sem er ekkert annað en Vauxhall Monaro, hann var með 6L vél og skilaði 400 hesöflum. Audi RS4 er með 4,2L vél og skilar 420 hestöflum. Ég bið þig, fyrir hönd okkar beggja, að vera ekki að rökræða um þetta mál. Það mun endast endalaust, engin lausn...