hæ, ég er nú ekki með sama vandamál, ég var með rosalega skakkar tennur, og skipti svo um tannlækni og hann sendi mig til réttartannlæknis, svo var ákveðið að ég ætti að fá spangir, ég er með spangir núna, í efri og neðri góm og þarf að fara mánaðarlega til að strekkja á vírunum. hver tími kostar 4.500 kr. Ég er að losna við spangirnar bráðum, er búin að vera með þær í tvö ár. ég fer í aðgerð i haust, hún á eftir að kosta slatta og þarf að taka endajaxlana úr. þetta er allt rosalega dýrt.