Já okey, gott mál. En ég var ekki heldur að segja að legato æfing þurfi að vera hröð. Ég hef alltaf verið á því máli að spila æfingar hægt til að æfa þær upp. Sá samt að þú skrifaðir: Allt sem þú hefur spilað, spilað svona helmingi hraðar- þá ertu kominn með legato æfingu. Kannski misskildi ég þetta, en það hljómaði eins og þú værir að meina að ef maður hraðar einhverja æfingu upp og þá væri hún orðin að legato æfingu. Eflaust áttirðu við eitthvað annað, þá er þetta bara smá misskilningur hjá mér :P