Skil þig mjög vel með að vilja spóla til baka, er á öðru ári í menntaskóla og veit ekki hvað ég myndi ekki gefa svo ég gæti farið aftur í tíman og byrjað aftur í skólanum, hitt fleira fólk og gert suma hluti öðruvísi. Er á frekar erfiðum kafla í mínu einkalífi eins og stendur og hefur páskafríið reynst ágætt, hef getað hugsað um hluti og finnst vera á góðri leið út úr þessum leiðinda kafla. Vona að þú finnir einhvern til að þurrka þessa einsemd úr lífi þínu. Kv. Flóðhestamaðurinn