já, hann var í rauninni bara að segja sannleikann. en jamm varðandi Dylan, hann hélt að Sky væri dáin og vill þess vegna ekkert láta finna sig því honum er svona nett sama um lífið ef hún er ekki í því, en pælið í kaldhæðni! hann ætlar ekki að láta finna sig því hann heldur að hún sé dáin, en það er búið að bjarga henni!
tssh, hvað er þetta! það er fullt af stelpum sem vilja frekar svona gaur eins og þig en einhvern super hnakka, ég er t.d. ein af þeim! ef þessum stelpum líkar mjög vel við persónuleikann en neita þér svo útaf útlitinu þá eru þær nú ekki þess virði að vera eitthvað að svekkja sig. og ég held að flestar stelpur vilji einmitt gaur sem drekkur í hófi og reykir ekki, eða ég giska á það. en mér finnst “góði” gaurinn miklu betri en þessi “vondi vinsæli” . samt passaðu að vera ekki of góður þá ferðu...
það er nú allt í lagi að taka vinina stundum framfyrir kærustuna. en ef að þau myndu hafa húsið útaf fyrir sig þá skil ég nú eiginlega ekki afhverju hann myndi frekar vilja vera með þeim:S
hann verður að vera fyndin, skemmtilegur, góður og traustið skiptir nú öllu. Útlitið skiptir auðvitað einverju máli en það skiptir mestu fyrir mig að hann sé með fallegt bros. Síðan finnst mér brúnt/svart hár rosalega flott og mér finnst ekkert flottara en að hann kunni að spila á gítar! það finnst mér ótrúlega sexy:S hann verður að vera stærri en ég og fínan tónlistarsmekk. síðan má hann ekki vera andfúll og ég vil að hann sé í einhverju smá formi. og svo er ég sammála “astrosharpa”...
Ástæðan fyrir því er að ég átti vini sem voru sífelt rakkandi mann niður ef maður sagði einhvað vitlaust og ef maður fór og reyndi við stelpu komu þeir að gera grín af manni og rakka mann niður fyrir framan stelpuna og endaði með að hún fór. ég myndi nú pottþétt vilja gaurinn sem var rakkaður niður en hinn, hinn er nú bara hreint og beint fáviti. en mér finnst þessi feimnu gaurar miklu áhugaverðri en þessir sem eru ótrúlega ánægðir með sig.reyndu bara að bæta sjálfstraustið með t.d. sumum af...
:S ég skil þig soldið, vinkonur mínar eru flestar mjög sætar, og strákar líta bara á þær, þær eru svona þessar dæmigerðu “plastgellur” eins og sumir kalla þær. En svo varð það einn strákur sem leit ekkert á þær og vildi bara mig því honum fannst ég lang fallegust því ég var bara svo “down to earth”. þannig það mun örugglega einhverntímann einhver strákur bara vilja þig!:D
þótt flestar vinkonur mínar séu þannig þá þoli ég ekki þannig “gellur”. sem þurfa að mála sig á hverjum einasta degi, með tonn af meiki, í þvílíkum tískufötum og eru ALLTAF að hugsa um hvað öðrum finnst og hegða sér þannig. þær bara pirra mig.
ég táraðist ekki, ég grét. ég er svo viðkvæm varðandi svona hluti:P en já, þegar það var sagt að Sky var fundin var ég ekkert smá glöð!:D og að sjá hvað Joe var ánægður:')
já okei, sorry:P,, já,ég hélt að þetta væru aðrir, en svo fattaði ég að þetta hefði verið Hugi með vinum sínum og þá sá ég eftir því:$ hehe, en Hugi var hinsvegar glaður að ég flúði:S
bíddu, þannig hún er komin í Valentinu gervið, ég sá bara þegar var verði að setja hana í það, þurfti að fara aftur í skólann:@ ,, geturu kannski sagt mér hvað gerðist eftir að hún var komin í gervið?
ef hann er hrifinn af þér þá segjir hann nú líklega ekki nei, en spurðu hann bara:) hann er örugglega alveg jafn hræddur og þú við að spurja, stígð þú bara fyrsta skrefið;) [var þetta "stígð" rétt hjá mér:P?]
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..