Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hvað finnst ykkur um tíma á spoiler?

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Yfirleitt eru þeir sem torrenta þetta búnir að ná í það á svona 2-3 dögum. Kannski hafa þá 4 til að vera viss…

Re: Hverja hérna hafið þið hitt?

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég hef náttúrulega hitt alla Mjölnisstrákana(Deathblow, jgt, Bjadni, péturm, Nelsonana, jonvidar, Arnar “Kenzo”, Árna “Shootfight” o.fl. Einnig hef ég hitt “Khan” Júdokappa. Fleiri man ég ekki eftir í augnablikinu.

Re: kvörtun vegna stjórnanda hwarang

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Reyndar hef ég gert það, en þetta tiltekna “diss” kom nú frá fyrrverandi vinnufélaga mínum, gröfumanni sem ég kynntist uppi á Kárahnjúkum. Ef einhver sem ekki reykti stakk hausnum inn í reykherbergið þá sagði hann þetta alltaf í alveg hreint hrikalega “patronizing” tón sem að er eiginlega ekki hægt að útskýra og heimtaði að svoleiðis vitleysingar hypjuu sig út…svona “vertu úti vinur, fullorðnir eru að tala saman hérna…”

Re: Rey Mysterio

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Það er ekki nóg. Ef að það eina sem ég þarf að gera til að kallast bardagalistamaður er að meiða mig reglulega þá get ég alveg eins hætt að æfa núna. Ég er alltaf að reka mig utan í eitthvað og klemma á mér puttana. :D Þú þarft virkilega að taka þig saman í andlitinu og átta þig á því afhverju menn hafa gaman af bardagalistum. Það er ekki til að horfa á “flott múv”… Það þarf að vera eitthvað á bakvið það sem þú ert að gera.

Re: Andy Hug

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Jájá, hann tapaði oft, sérstaklega gegn hollensku mulningsvélunum Peter Aerts og Ernesto Hoost. En hann vann þá líka :D og marga aðra eins og t.d Crocop. Andy Hug var ekki vinsæll endilega af því að hann var bestur og barði alla, hann varð goðsögn á því að verða fyrstur til að sanna að Karate gæti verið samkeppnishæft, Japanarnir voru ofboðslega ánægðir með það, og svo líka út af því að hann var einstakur sjéntilmaður bæði í hringnum og utan hans.

Re: Rey Mysterio

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
What the hell… Síðan hvenær varð þetta að fjölbragðaglímuáhugamáli? Búúú!!! Burt með þetta rusl. Þetta er ekki áhugamálinu samboðið.

Re: Frank Shamrock

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ætti einhver að photoshoppa þessa mynd í stíl gömlu áróðursplakatanna með Sámi frænda… “I want YOU to join the MMA army!”

Re: Andy Hug

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hann var lagður inn útaf æxli í hálsi, en þegar hann var rannsakaður nánar kom í ljós að krabbinn var kominn í blóðið og út um allt. Hann dó einhverjum 2-3 mánuðum eftir að það komst fyrst upp að hann væri veikur. Gerðist allt mjög hratt.

Re: Andy Hug

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Fyrir löngu síðan skrifaði ég grein um þennan mikla mann… http://www.hugi.is/martial_arts/articles.php?page=view&contentId=971059

Re: Gaman hjá Chuck

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Kallinn verður að passa sig að missa sig ekki í frægðinni og peningunum…ef að hann tekur Rampage ekki alvarlega er hann í vondum málum. En það er ennþá langt í bardagann, um að gera að djamma og djúsa og taka svo bara hressilega á því þegar undirbúningstímabilið byrjar :D

Re: Tæ kvon dó

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Það sem ég myndi lúberja með spýtu hvern þann mann, “meistari” eða ekki, sem að heimtaði að ég hneigði mig fyrir honum daginn út og inn og sparkaði í mig ef ég gerði það ekki. Svart belti á aldrei að vera frípassi á það að hegða þér eins og fífl.

Re: UFC 68 - Sylvia vs Couture ***SPOILER***

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hmm…ég verð að vera ósammála. Randy sló hann niður og stóð ALLA 3. lotuna gegn honum og gjörsamlega niðurlægði hann í standuppinu. Tim átti aldrei séns. Og menn eru aldrei látnir standa upp úr backmount. Ég hef séð Pride bardaga þar sem menn böðlast lengur í backmount ef eitthvað er. Tim var að reyna að tefja tímann í jörðinni og Big John sá alveg hvað hann var að hugsa og sagði meira að segja við hann að hann myndi ekki láta þá standa upp úr svona dominant stöðu.

Re: kvörtun vegna stjórnanda hwarang

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Þú ert einhver nýliði sem ekkert veit og ekkert kannt. HwaRang er drengur góður sem hefur góð tök á að stjórna þessu áhugamáli Hlýddi bara því sem hann er að segja þér eða vertu úti vinur… :D

Re: Tæ kvon dó

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Er það ekki bara í byrjun og lok æfingar? Þannig var það hjá KA þegar ég var þar…menn voru ekki að hneigja sig fyrir þjálfaranum sérstaklega(hann hneigði sig líka), heldur meira svona bara að hefja og slíta æfingunni formlega.

Re: Tæ kvon dó

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Já en er það ekki raunin að skilyrt virðing er alls engin virðing? Þegar ALLIR verða að hneigja sig og nota virðingartitla, þýðir það eitthvað í raun og veru? Ég get bugtað mig og beygt þangað til ég verð blár í framan, þýðir samt ekki að hugur fylgi máli. Hvernig veit kennarinn hverjum er alvara og hverjum ekki?

Re: WWE , Pro wrestling. á heima hérna

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Á meðan prowrestling hjakkar í því soruga fari að nýta sér alla verstu eiginleika mannskepnunnar til að selja vöruna sína, sé ég ekki hvernig sæmilega grandvarir bardagalistamenn geta þolað að hafa þetta á sínu áhugamáli. Það er eitt að feika úrslitin(þó að það sé nú alveg nægilega slæmt), en WWE klykkir algerlega út með því að búa til “plott” þar sem menn vinna titla með því að svindla, berja menn aftanfrá með stólum og hækjum, hóta dómururm og fleira ósmekklegt. Þó svo að það sé allt...

Re: Pedro Sauer Vs Body Builder

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hehe, erfitt að sjá hvað er að gerast vegna arfaslakra myndgæða. En jú, vaxtarræktargaurinn var tekinn í armbar. Hann entist reyndar lengur en ég bjóst við.

Re: WWE , Pro wrestling. á heima hérna

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Nei. Biddu bara um Prowrestling áhugamál, eða biddu þá sem eru eð leiklistaráhugamálið að taka þetta að sér. Prowrestling, og hvernig þau batterí hafa hegðað sér í gegnum tíðina eru móðgun við ALLAR bardagalistir og eiga alls ekki heima hér. Ef að slíkur korkur verður settur upp hér þá er nokkuð ljóst að 90% af öllum innslögum verða menn að hrauna yfir WWE. Það er hvorki gott fyrir áhugamálið bardagalistir né þá sem vilja tala um WWE - þeir verða bara að gera það einhversstaðar annarsstaðar.

Re: Mjölnirsmenn?

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Já skiljanlega, reykhreinsun er alveg hrikalega dýr nú til dags.

Re: Mjölnirsmenn?

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Allar upplýsingar á www.mjolnir.is

Re: Ninja!

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég hélt að það að vera Ninja snérist fyrst og fremst um að koma ekki upp um sig. Dáldið erfitt þegar það er bara hægt að fletta þér upp í símaskránni.

Re: Best of Deathblow part 1

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Vá shit það er satt….rosalega langt síðan hann þursaðist hér um slóðir….var það ekki 2002 eða eitthvað?

Re: Best of Deathblow part 1

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Þetta er hugsanlega besta grein allra tíma á þessu áhugamáli. Nú þarf bara einhver að grafa aftur í forneskjuna og gera “best of Skugga-baldur” einnig.. Ég hef traustar heimildir fyrir því að sá einstaklingur æfi einnig hjá Mjölni í dag :D

Re: Dr, Evil

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég skil bara ekki allt þetta Dana hatur…gaurinn bjargaði 1. seríunna af TUF og er stór hluti af því hversu vel MMA gengur. Án hans væri Pride ekki að koma til BNA, ProElite og BoDog væru ekki til, og 60 Minutes væru ekki búin að fjalla um MMA. Svo einfalt er það WAR DANA & UFC!!!

Re: Mirko Crocop Filipovic Training for Fedor Documentary

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Það mun vera króatíska. En takk samt fyrir myndbandið! P.s er 4. hluti af Warrior Nation komið á netið?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok