OK. Virðist vera sem að hér um slóðir ríki endalaus rígur milli metal-manna og hiphoppara….skítt með það. Allavega, ég hef í gegnum tíðina verið afar víðsveimur í tónlistarvali, hlustað á allskonar músík en aldrei dottið inn í hip hop. Það næsta sem ég hef komist er kannski Rage Against The Machine, Public Enemy og einstaka lag með Cypress Hill. Af hverju? Alls ekki útaf því að ég hafi eitthvað á móti beats, þvert á móti, ég hef lengi hlustað á drum and bass, trip hop, og allskonar...