Menn eru naktir, ekki aðrir apar. Þeir smíða hús sem umlykja þá á alla vegu, borða mat sem þeir eiga oft engan hlut í að veiða eða rækta, tala saman með tungumáli sem getur tjáð nánast jafn flókin hugtök og vera vill, ferðast í tækjum sem þeir smíða bæði á, undir og yfir láði og legi og, fyrst þú minnist á það, temja og setjast á háa hesta og ala önnur húsdýr í gríð og erg fyrir allan fjandann. Ég er ekki viss að þú vitir hvað þú átt við þegar þú segir að það muni “einu og hálfu prósenti á...