Ég held að það sé venjulega notað læknastál eða títanum. Minnir allavega að byrjunarlokkurinn minn hafi verið úr læknastáli, en ég er með títanum núna vegna þess að það er búið að stækka gatið. Byrjunarlokkarnir eru, að ég held, alltaf silfurlitaðir. Tattoo og Skart er alveg safe, enda fer ég ekkert annað og hef látið gera 11 af mínum 12 götum þar. Gat og lokkur kostar 5000 kall minnir mig. Ég get ekki svarað þessu með kúluna í tungunni þinni, en ég myndi samt láta athuga þetta.