Ég veit ekkert af hverju þær láta svona, ætli þær séu ekki bara of ólíkar. Ég efast um að hún baktali mig líka, hún hefur engann til að baktala mig við… Svo bætist ofan á þetta að sú viðkvæma kann ekki að þegja yfir leyndarmálum og hef ég lent frekar óþægilega í því, þó það hafi ekki verið viljandi gert hjá henni. Ég get talið upp endalaus lítil atriði sem hafa áhrif á þetta en í augnablikinu er ég svo þreytt á þessu að ég hallast helst að því að kasta peningi :-O