Heldurðu virkilega að alkohólistar velji að vera alkohólistar? Að þeir velji að hrinda fjölskyldunni frá sér, að eyðileggja líf sitt og deyja ótímabærum dauða? Þegar talað er við óvirka alkohólista, eiturlyfjafíkla og aðra sem hafa átt við svipaðan vanda að stríða eru lýsingarnar alltaf svipaðar. Fólk man ekkert, margir mánuðir, ár eða jafnvel áratugir eru í móðu. Hversu meðvitað er þetta fólk um það sem það var að hugsa á þessu tímabili? Ég veit að margir trúa ekki að til sé neitt sem...