Að singla og að mjassa eru orð sem að mínu mati eru svo skemmtileg að það ætti að vera skylda að nota þau. =) Að gætrast er líka voða krúttlegt orð, og þýðir að leika sér. Gætrur er skylt orð, merkir barnaleikir. að singla: að pissa að mjassa: að sarga, að japla Ég nota reyndar öll orðin sem þú taldir upp en aftur á móti er ég ekki venjulegasta manneskja sem þú gætir spurt um þetta. Mér finnst líka að það ætti að taka aftur upp zetu í íslensku, hún er mjög fallegur stafur.