Heilræðavísur Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra Íslands. (Sást til tveggja manna að ræðast við inni í stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg. Heyrðist þá annar kveða:) Ungum er það allra best að óttast stjórnarherra, þeim mun velferð veitast mest og virðing aldrei þverra. Hafðu hvorki háð né spott, huga að ræðu minni, hinum æðsta gerðu gott, gleymdu æru þinni. Ráðherrum þínum þéna af dyggð, það má gæfu veita, varast þeim að veita styggð, viljirðu gott barn heita. Hugsa um það helst og fremst,...