Eru þeir virkilega með jafnstóra skjái? Mér hefur alltaf fundist skjárinn á PSP svo lítill, en hvað með það. Svo vissi ég ekki þetta með breytingarnar á PSP þannig að tengimöguleikinn við tv er greinilega ekki einstakur. En það er að vísu eitt betra við Archosinn, þú getur keypt þér lipstick cameru (helmet cam) og tengt við hann og tekið upp ef þú ert eitthvað fyrir það, ég hef verið að gera það og það er frábært ef þú ert að stunda eitthvað spennandi sem gaman er að ná myndböndum af.