Það er svo langt síðan ég þurfti eitthvað að spá sjálfur í útivistartíma svo ég man þetta ekki nákvæmlega, en hann er einhvern veginn þannig að á sumrin mega 13 ára og yngri vera úti til 22:00, en 20:00 á veturna, og 13-16 ára mega vera til 22:00 á veturna og miðnættis á sumrin. Undanskilið frá þessu er bein heimleið frá einhverjum æskulýðssamkomum og eitthvað, man ekki hvernig það er orðað. Þannig er lögreglusamþykktin í Reykjavík, veit svo sem ekkert hvernig þetta er í öðrum...