Bæði betra. Ég á tvo lampamagnara og einn digital, og nota þá alveg sitt á hvað. Lampamagnarinn hljómar meira “ekta”, meira “lifandi” og bregst meira við því sem maður gerir við gítarinn, en það fylgir honum viðhald, og hann hljómar aldrei nákvæmlega eins í tvö skipti (þótt munurinn sé það lítill að maður taki ekki eftir honum) vegna þess að lamparnir og fleiri partar í honum slitna, en Digital magnarinn er svo miklu fjölhæfari, breytir minna um karakter vegna slits, honum fylgir mikið minna...