Ég vil deila með ykkur hérna einni sögu. Fyrir mörgum árum síðan, ætli ég hafi ekki verið um 11 - 12 ára, ok ok, kannske ekki mjög mörg ár síðan, þá var platið í Ríkissjónvarpinu semsagt að hópur af Hreindýrum hefðu sloppið úr Húsdýragarðinum og héldu til á Miklatúni þar sem hópur af fólki ynnu við að halda þeim þar þangað til hægt væri að sækja þau. Það voru sýndar myndir af þessu, mjög vel gerðar myndir meira að segja, en gabbið var mjög augljóst. Núh, bróðir minn sem er 9 árum eldri en ég...