Það er örugglega ekkert skemmtilegt eða æðislegt við það að brjóta eða tvíbrjóta á einhverjum handlegginn og ef einhver hefur gaman að slíku þá á viðkomandi heima á stofnun. Þeir sem fá “æðislega valdatilfinningu” út úr því að meiða annað fólk alvarlega, eru vafalaust brenglaðir aumingjar með stæka minnimáttarkennd og ættu að halda sig við að hlusta á reiðlegt gelgjurokk inni í herberginu sínu á meðan þeir skera sig í handleggina og grenja yfir því hvað heimurinn er vondur við þá.