Ásgeir hinn ofursnjalli ofurapi sem bjargar málunum. Fyrsti hluti: Offitusjúklingur Á háleinilegum felustað hins illa Illuga. Hahahaha, ég hin illi Illugi hef fundið upp meistaralegt plan til að eyða heiminum. Hann var að segja þetta við þrjá dygga samstarfsmenn sína. Þau hétu Glámur, Friðgeir og Stína Zombie. Eins og nafnið gefur til þá var hún zombie. Þau voru ekki að hlusta af athygli enda var daglegt brauð að Illugi væri að fara að eyða heiminum. Ég hef samið við nokkrar geimverur á mars...