Oi! Þetta er nú þér að segja fyrsta mótið sem ég vinn með orkunum, og er sáttur við :) Ég var í raun mjög hissa á því hvernig gekk, eins og allir vita eru orkarnir mínir mjöööööög random her, annað hvort gengur allt vel eða allt illa. Núna gekk oftar allt vel en allt illa! En já, ég verð að játa að ég varð hræddur þegar ég sá slatta af Bloodthirsterum, að ekki sé minnst á helv… chaos dragon. En ég held að þeir sem það notuðu hafi eins og þú segir séð eftir því oft á tíðum. Ég barðist á móti...