Málið er að láta ekki fyrri sambönd stoppa sig. Við verðum öll særð og munum flest líklega særa líka en þannig er lífið og þannig lærum við. Ég mæli með því að þú látir á þetta reyna - þó nokkrar stelpur séu ömurlegar þá erum við ágætar inn á milli ;)
Reyndar skil ég þetta með “Úti eins lengi og þú vilt”. Ef þú býrð hjá þeim þá setja þau reglurnar. Ef þau vilja ekki vakna við umgang kl. 5 um nóttu þá er mjög skiljanlegt að þau vilji ekki að þú komir heim þá. Þeirra hús, þeirra reglur.
Aldur kemur þroska samt oft ekkert við. En mikill hluti fólks á huga er mjög óþroskað, óháð aldri. Ég er annars sjálf að verða 17 (á laugardaginn) og ég kíki af og til hingað inn. Tek ekki mikið þátt en ég les samt flest.
Ef þú telur að þú sért þunglyndu, sama hverjar niðurstöðurnar eru, þá er nr. 2 góð hugmynd. En ef þér líður ágætlega, og niðurstöðurnar voru ekki endilega rosalega réttar, þá bara nr. 1
Æji ég veit ekki. Maður getur held ég aldrei ákveðið það, “já ég myndi gera svona og hinsegin”. Ég vona bara (og held) að ég þurfi aldrei að komast að því aftur!
… Þú ert greinilega ekki að vinna á réttum stað. Þar sem ég er að vinna er einn eða tveir strákar í sömu vinnu. Þegar ég var að vinna í verslun voru fleiri stelpur. Þegar ég var að vinna í bakaríi voru fleiri stelpur. Flestar stelpur sem ég þekki eru í vinnu eða vilja vinna. Og stelpur eru ekki aumingjar frekar en strákar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..