Ég byrjaði á félagsfræðibraut í MH en fílaði mig ekki. Er núna á málabraut. Kennararnir eru flestir mjög fínir, sumir eru það auðvitað ekki en þú veist ;) Margir frábærir og skemmtilegir þarna líka. Skólaandinn er mjög góður, allt frekar casual bara. Félagslífið er gott, það er lagt mikið upp úr keppnum eins og morfís og gettu betur, lagningadagar (opnir dagar) eru alltaf vinsælir og svona. Mjög skemmtilegt allt saman bara.