Tjah… Mér fannst þetta nú ekki alveg sökka, en mér fannst þetta aðeins of. Flott pæling og mörg atriðin voru góð, en bara einum of langdregin. Það er oft flott að láta atriði ganga lengi en eins og í fermingaratriðinu þar sem skilaboðin komu á veggnum fimm sinnum í röð! Það var tvem og hálfu skipti of mikið. Flott leikrit og pæling en hefðu mátt slaka aðeins á artí-inu
Tanz er reyndar eina skemmtilega trollið sem hefur komið inn á huga og það eru alveg þó nokkrir sammála mér. Held að flestum finnist þú reyndar vera asninn í þessu samtali þar sem að Tanz er augljóslega troll og þú ert að pirrast yfir einhverjum lúða sem situr heima hjá sér sveittur og illalyktandi að hrekka einhverja aumingjas hugara.
Þræði* Þó að þér finnist ég standa mig illa hér er ég þá almennt léleg í rökræðum? Trú er erfitt og viðkvæmt málefni og það eru svo skiptar skoðanir á því að það er erfitt að rífast og rökræða um það. Það þýðir samt ekki að ég sé léleg í rökræðum.
Það er eitt að gagnrýna trúarbrögð og vera á móti þeim og segja “galdarar eru ekki til og vá hvað hún vill vera öðruvísi”. Gagnrýni er eitt, að rakka niður og tala illa um er annað.
Ég er alls ekki þröngsýn. Mér finnst þú einmitt þröngsýnn að horfa á trú eins og heimsku og óþroska. Hvað er óþroskað vilja trúa? Trúa að það sé eitthvað eftirlíf, einhver æðri máttur sem hjálpar þér á erfiðum stundum?
Já, ég þekki þau orð. Trú þýðir ekki að maður sé heimskur. Það að trúa á guð er ekki heimska, það er að trúa á eitthvað æðra afl til að hjálpa manni í gegnum daginn. Sé ekkert heimskulegt við það.
Þá færðu ekki frítt. Framhaldsskólakortið er fyrir þá sem eru í skóla á höfuðborgarsvæðinu og þurfa að nota strætó dagsdaglega til þess að komast fram og tilbaka. Mæli með því að þú kaupir bara miða í Mjódd eða á Hlemmi (og svo er það hægt annarstaðar, man ekki hvar)…
Nei, ég vildi bara koma því til skila að mig langaði ekki að tala við þig. Og ég ákvað að gera það með því að svara. Ég var ekki að koma því til skila sem hrósi né niðurlægingu heldur til að láta þig vita. Í framtíðinni skal ég muna það að þú vilt ekki láta svara þér. :)
Ef þú ert í framhalds- eða háskóla þá er það frítt frá því skólarnir byrja svona 19-22. ágúst til 1. júní 100 kall fyrir yngri en 18 280 fyrir eldri en 18
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..