Þó að hún sé ekki fullkominn gefur það honum rétt á að ljúga? Verð bara að segja að mér finnst “svona lygi” vera frekar slæm, sérstaklega á þessum tímapunkti þar sem að sambandið er viðkvæmt. Fyrrverandi kærustur eru náttúrulega alltaf veikur blettur, sérstaklega þegar hún er greinilega óörugg um sambandið eins og það er. Lygar, sérstaklega um aðrar stelpur, eru alltaf meira mál fyrir mann sjálfan heldur en utanaðkomandi aðilar geta séð.