Nice, vonandi spiliði fjölbreytta tónlist, slogan-ið hjá fm957 gæti allt eins verið “við spilum sömu tónlistina aftur og aftur allan dag”. Frekar þreytt þar sem meirihluti útvarpshlustenda er fólk sem hlustar á það í vinnuni.
Ég vill meina að það sé öðruvísi að commenta á allt þetta væl og að væla sjálfur. Ég var búinn að svara svona spurningu áður það er hérna uppi einhversstaðar.
Nei, Krónan myndi hækka verðið þegar það er enginn samkeppnisaðili. Þetta er einfald dæmi um framboð og eftirspurn. Ef það koma fleiri í búðina þína þá hækkaru verð, ef það vantar viðskiptavini þá lækkaru verð. Þannig að Bónus er alltaf að hækka verðin núna þar sem flestir versla hjá Bónus og einu lágvöruverslanirnar sem þú þekkir eru Krónan og Bónus?
Viltu að ég búi til powerpoint handa þér? :P Helduru virkilega að þjófnaður sé minni í útlöndum en á íslandi? Annars eru margar búðir í útlöndum með reglu að þú þurfir að taka körfu annars færðu ekki að fara inn. Þegar ég var í New York þá þurfti ég alltaf að vera með körfu.
Með því að versla í Bónus ertu að styðja útrásarvíkinga. Ef allir myndu hætta versla í Bónus og byrja að versla í krónuni þá myndi Bónus fara á hausinn og Krónan lækka verðin. Profit. Þú hlýtur að skilja að það er annað að væla yfir vælurum, það má því miður ekki skjóta vælara þannig að ég get ekki gripið til róttækari aðgerða sem vælararnir geta í flestum tilfellum en gera það ekki en væla endalaust. Ég er allaveganna ekki að fara stofna enn aðra lame facebook gruppu.
Ég vinn i búð og hlæ alltaf inn í mér þegar ég sé fólk koma með hendurnar alveg troðfullar að missa allt á gólfið. Það vildi pottþétt bara kaupa nokkra hluti en man svo eftir hinu. Svo er það regla víða um heim að maður þurfi að vera með körfu til að setja hlutina í annars ertu grunaður um þjófnað.
Ég held að þetta sé bara mindfuck, ef þið mynduð fara á McDonalds og fá ykkur 2 hamborgara, en hinn væri Metro borgari í McDonalds umbúðum (en þið vissuð það auðvitað ekki) þá mynduð þið ekki finna muninn.
Mér fanst hún ekkert spes, frekar þvingaður og vandræðalegur húmor. En jú það voru alveg fyndin original atriði en klisjurnar, þótt að það var verið að gera grín af þeim, voru bara ekkert fyndnar og eyðilögðu myndina fyrir mér.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..