Vá hvað ég kannast við þessa þögn. Óþolandi. Hugsanlega vita þær ekki hvernig þær eiga að segja ‘nei’, eða ‘ég þarf smá tíma til að hugsa málið’ eða eitthvað í þá áttina. Ég lenti í þessari þögn með eina sem var eitthvað að spá í mér og ég í henni, svo fórum við í bíó og eyddum saman kvöldi (ekkert kynlíf), kysstumst bless. Svo bara þögnin í heila viku, eða þangað til að ég sendi henni SmS um að ég vildi ekki láta svona fara með mig og sagði ‘bless’. Daginn eftir hringdi hún og vældi...