Ef þú ert svo meðvitaður um fordóma þína gagnvart þeim, afhverju kynnirðu þér þessa þjóð ekki betur og dæmir hana svo? Afhverju að hata Bandaríkin sem þjóð? Afhverju ekki að hata frekar einstaka aðila innan stjórnarinnar og nefna þá frekar á nafn heldur en að segjast hata þjóðina í heild sinni? Þú gerir þér vonandi grein fyrir því að hatur á 300 milljónum manna, sem eru ekki mjög frábrugðnir Íslendingum hvað varðar lifnaðarhætti, lætur þig líta heimskulega út. Þú berð ekki nafn með rentu.