Ég hef stúderað þetta svið alltof mikið, ef svo má að orði komast. Hvort ég trúi á þetta eður ei, kemur málinu svosem ekki við. En talið er, að það fari eftir því hversu sterkir andarnir (draugarnir, framliðnu) séu, hvort þeir geti snert mann eða ekki. Fer líka eftir því hvort þetta séu fépúkar, mórar, skottur, ærsladraugar eða fylgjur. Ef þú skilur hvað ég á við.