Ég ráðlegg þér reyndar að hafa þessa dýnamísku menua statíska, það er að búa til eina .js skrá með .asp/.php -inu, í admin hlutanum hjá þér þá myndirðu keyra bara fall sem að spýtir skránni út. Ef þú ætlar að láta þetta búa til .js-ið á hverri síðu (on-the-fly) þá tekur það lengri tíma og er óþarfa álag.<br><br>– Summum ius summa inuria
Ó vei mér hvað það væri hræðilegt. Hvað voru Slóvenía, Króatía og Bosnía-Hersegóvína að hugsa? Og vitleysingarnir í Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Úkraínu, Kazahkstan og svo framvegis. Takist með klípu af salti.
Mín ágiskun er sú að þegar þið setjið þetta inn í console þá er MS-DOS ekki að nota rétt stafasett. Þetta er hægt að laga með því að gera eftirfarandi: 1. Downloada: http://joi.betra.is/download/fa_rett_codepage.reg 2. Tvísmella á þetta þegar það er komið á vélina (5 kb) og samþykkja að þetta sé skrifað í registry hjá þér (aðvörun poppar upp). Þetta er registry lykill, sem að skrifar í Registryið þitt og breytir codepage sem að MS-DOS notar yfir í íslenskt. ATHUGIÐ! Að downloada svona .reg...
Sammála að sjálfsögðu en upphafsorð þín eru áhugaverð, er þetta múgæsingur þegar að þegnum ofbýður alræðisrugl stjórnvalda? Verða að vera færri en 1000 sem mótmæla til að þetta teljist ekki múgæsingur?
Vandamálið er ekki að kunna textann, vandamálið er að það er trillað upp og niður og svo hrikalega hátt upp tónstigann. Aðeins þaulæfðir söngvarar geta sungið þetta skammlaust, og þá ekki einu sinni glæsilega. Þetta er ekkert sem að venjulegir borgarar geta sungið án þess að gera lítið úr söngnum þar sem þeir ná ekki háu C-i og trilla niður í hvað þetta heitir nú allt. Plús það að Ísland sé lítið blóm sem deyr er ekki beint uppbyggileg skilaboð… nýjan þjóðsöng takk.. það er ekki eins og...
Sko til, brilljant að henda út þessum idjót þarna (svarið mitt flaug reyndar út líka en það er sjálfsagður fórnarkostnaður). Ég hóf minn CM feril að mig minnir 1991, þegar ég byrjaði í menntaskóla. Þar hafði einhver smellt honum á vélarnar í tölvuverinu og ég fór svona að prufa mig áfram í þessu. Til að gera langa sögu stutta þá stofnaði ég tölvuleikjaklúbb í skólanum, hafði ekki rétta tölvu heima (AppleIIe!) til að keyra CM þannig að ég spilaði bara í skólanum á þeim tímum sem klúbburinn...
Ég póstaði grein um þetta á “Deiglan”, en henni var víst hafnað af Xavier. Það fyndna er auðvitað að það eru litlir sætir gagnagrunnar sem senda SMSin, ekki litlar sætar stelpur.<br><br>– Summum ius summa inuria
Nígeríumenn eru með mjög skemmtilegt lið en það sem háir þeim er allt ruglið í kringum þjálfaramálin… nýjasta útspilið er að fá Toppmöller (sem er vissulega búinn að gera góða hluti með Leverkusen) til að taka við liðinu 3 vikum fyrir HM! Ekki er það mikill tími sem hann fær þar til að skipuleggja liðið, og ætli leikmennirnir hafi ekki verið valdir fyrir hann líka…
Málið er ekki að þetta fylgir með heldur að þeir segja að stýrikerfið virki ekki ef að IE sé tekinn út… það að þú getir ekki ráðið því hvaða forrit eru inni á vélinni þinni heftir ÞITT frelsi… ég t.d. get ekki losnað við Outlook Express þó feginn vildi… þetta tekur pláss á mínum diski sem að ég myndi vilja eiga fyrir það sem ég vil að taki pláss
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..