Ég hef einmitt núna sent grein til Kristínar Helgu þar sem ég reyni að kynna fyrir henni hvernig samfélagið sem hún skammast út í er. Hún sýndi vissulega fáfræði og fordóma, þetta var ágætis pistill sem hún fékk frá mér og mætti segja þetta vera ígildi kafla í Bók Ágústusar (inside joke… ég skrifa sjaldnast stuttar greinar þegar mér liggur eitthvað á hjarta). Allt tal um ærumeiðingar er hins vegar út í hött, hvergi nefndi hún neinn á nafn (nema Símann) og aðdróttanirnar eru óbeinar frekar en...