Gæti alveg verið að þú hafir upplifað eikkað, ég sjálfur trúi á svona hluti…. eða allavega upp að vissum mörkum. Ég lenti sjálfur í einhverjum skrítnum hlutum fyrir ca. mánuði síðan. Þannig var að ég og félagi minn fluttum í vor (höfðum leigt saman í 3 mánuði á öðrum stað). Ég einhverra hluta vegna gerði aldrei neitt við herbergið mitt, bara setti rúmið inn og svaf á dýnunni eða þá að ég sofnaði yfir imbanum. svo gerðist það í byrjun ágúst að ég var að reyna að sofna en ég bara gat það ekki,...