Pabbi var í BNA fyrir stuttu og fékk 5 svona VS sprey (Garden Collection) á eitthverja 20 dollara. Var víst eitthvað tilboð. Ég var mjög ánægð, gaf svo kærustu bróður míns 2 af þeim. Ég er svo góð! (A) En já, ef einhver er að fara til BNA sem þú þekkir þá myndi ég kaupa það þar, ódýrt og mikið úrval. Victoria Secret er útum allt. (Eða mér finnst það)
Láttu bara á þig barnaolíu þegar þú ert næst í sólbaði. Eða bara einhverskonar góða olíu. Olían dregur í sig sólina (Eða, þið fattið) og þú verður fljótari brúnni. En… þó hún sé ekki það sterk hérna á “klakanum” þá er hún lúmsk, þú gætir brennst svo ég myndi passa þig. Ég var t.d. í Grikklandi og í seinni vikunni var ég komin niður í sólarvörn númer 6 og ég valdi mér eina sem er með olíu í. Ég varð freeeekar brún. Allt náttúrulega. Svo er ég oft í sundi og það hjálpar mikið. Vinkona mín varð...
Jamm, mig líka, en mamma er búin að plana eitthvað drasl með fjölskyldunni sem ég ÞARF að fara með í. Segjir alltaf að ég eigi að koma með því að ég er að fara burt svo lengi… ég er samt ekki hætt að suða. :P
Ég er búin að sækja um, gerði það á netinu þar sem pabbi gamli tók bílinn minn. :) En því miður get ég ekki verið sendill. Ég er bæði ekki orðin 18 ára og ég er örugglega áttavilltasta manneskjan á Íslandi. :)
Ég er að fara í haust og ég er búin með 1 ár í framhaldsskóla. Ég er sammála öllu því sem seinasti ræðumaður sagði. Ég veit sjálf að mér finnst ég vera þroskaðri og tilbúnari að taka við svona miklum breytingum en ég var fyrir einu ári. Ég er líka heppin með það að það er stelpa með mér í skóla á sama ári að fara með mér til sama lands. :) Svo ég er ekki ein. :P
Ég er á leiðinni til Dóminíska Lýðveldisins, fer í ágúst á vegum AFS. Þetta land er draumur, það er staðsett rétt hjá Kúbu og Jamaíku. Svona eiginlega Mið-Ameríka. Þar er töluð spænska og þetta er mikið dans-land. Strendurnar og landið sjálft er rosalega flott og fólkið er svo almennt og kurteist að það er varla eðlilegt. (Gamlir skiptinemar segja það). Ég myndi kanna þetta land ef ég væri þú. Hljómar rosalega skemmtilegt land. Við erum 6 að fara þangað í ár. :)
Ég er ekki flutt, fer eftir 2 mánuði. Ég sagði í korknum að ég væri peningalaus, ég á ekki einu sinni efni á bensíni og ég er að fara út í heilt ár. Hvernig í ósköpunum á maður að eiga efni á þessu? Það er allt leiðinlega dýrt hérna á Íslandi. :/
Mig vantar svakalega mikið vinnu, er 17 ára, bý í Hafnarfirði alveg rétt hjá Firðinum. Hentugt. En ég er að fara til útlanda eftir 6 daga og verð í 2 vikur. :/
Já, hehe, það var sko ég. “Ég er samt eiginlega ekki að fara að sjá þig á morgun… :) En okay! Hasta mañana :)” Með… “En okay” átti að vera: “okay, mér er sama, segjum bara” og svo kom.. hasta manana. :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..