Eftir að ég las þessa grein ákvað ég að smíða mér bassa. Ég er búinn að fá aðstöðu hjá kunningja mínum, reyndar bara venjulegt smíðaverkstæði, en það dugar, svo þekki ég einn sem vinnur í Byko og hann ætlaði að athuga fyrir mig hvort hann gæti reddað mér Mahony og hlyn. Svo fór ég á stevmac.com og skoðaði pickupa, fingraborð og fleira, á reyndar eftir að panta, ætla að gera það þegar ég er komin að stað með bassann. Nú er bara að hefjast handa. Ég ætla að hafa hann 5 strengja og bandalausan....