“Við sveimum að smá hæð sem er þarna og ég bendi leiðangursstjóra á að það sé kannski hentugt og honum líst vel á það, en svo dettur mér í hug að vara hann við að það geti kannski orðið ansi hvasst þarna á þessari hæð en hann segir það ekkert mál, þetta sé fínn staður. Jæja hann um það, hann er Grænlendingur svo hann hlýtur að vita hvað hann talar um.” Voða er gaman að hafa rétt fyrir sér stundum.. Við sóttum liðið í gær, allur camp´inn var við að fjúka út í hafsauga á miðvikudaginn, 60 kts...