Flott! Gaman að vita þetta og myndin gefur greininni alveg nýtt líf! :D Eitt sem er þó ekki alveg sannleikanum samkvæmt hjá þér er þegar þú segir tvíburana vera hávaxna, það er ekki rétt. Í Weasleyfjölskyldunni eru tvennskonar líkamsbyggingar, börnin eru annað hvort hávaxnir slánar eins og Ron og Percy, eða þá aðeins lágvaxnir miðað við aldur, þar á ég við tvíburana og Ginny. Það kemur fram í einni bókinni að þótt Ron sé tveimur árum yngri en tvíburarnir, þá sé hann samt álíka hár.