Hehe, mér finnst nú bara sniðugast að vera hreinn á þessu, reyndar nefni ég þetta nú ekki að fyrra bragði, en ef ég er spurður segi ég nú bara “Ha, auðvitað spila ég d&d, sérðu ekki hvað ég er mikill nörd?” Þannig séð er nú spunaspil ósköp svipað og leikir sem maður lék sér að sem barn, nema nú eru fastar reglur til að koma í veg fyrir “Minns hitti þinns”, “Nei, minn er í ofurbrynju, og skýtur þinn til baka”, “Nei, minn beygði sig”-rifrildin En hvað um það, það er drullugaman að þessu.