Púff, þessi er erfið. Mínar tillögur: Nauthólsvík, fjöruna, Perluna að skoða gosbrunninn, höfnina að skoða skipin. Ef barnið er með vinnuvéladellu þá má reyna Austurvöll ef þeir eru ennþá í framkvæmdunum í Pósthússtræti. Síðan heyrði ég af einhverjum sem notaði farþegasalinn á Reykjavíkurflugvelli til að sýna barninu flugvélar. Mér dettur ekkert annað í hug í bili.