Nákvæmlega. Það er meira smooth að lenda á afturdekkinu. Hálfpartinn manuala lendinguna. En er maður er eitthvað að massa hlutina á FS þá er yfirleitt málið að lenda á báðum…
Þú ættir nú ekki að þurfa nýjar bremsur. Ég myndi fara aftur með hjólið í Markið og segja þeim að þú sért ekki sáttur við síðustu viðgerð. Lýsir vandamálinu og sýnir þeim. Þú ættir strangt til tekið að fara fram á þú borgir ekki fyrir þessa viðgerð því þeir gerðu aldrei almennilega við hjólið seinast. Ég myndi allavega gera eitthvað þessu líkt. Muna samt að það gengur yfirleitt allt betur ef maður er kurteis og ekki með leiðindi! ;)
Jú, massi þinn hefur allt að gera með hversu mikið álag er á wheelsettið þegar þú ert að bremsa (hefur þó ekkert að segja ef þú ert að læsa dekkinu í loftinu eins og var talað um hér framar).
Er diskurinn ss að nuddast í caliperinn? Kom eitthvað fyrir þegar þú varst að brasa í þessu þannig að vökvinn gæti hafa lekið út? Þú átt ekki að þurfa að bleeda ef þú ert bara að setja stærri disk og ekkert annað…
Jújú. Það kemur nátturulega upp á móti sparnaðinum sem fæst með það að hann ýtist ekki alveg jafn fast upp að disknum. Ætli þetta komi ekki bara út eitthvað svipað?
Ég því miður er ekki alveg nógu vel að mér í diskunum sjálfum hvað þetta varðar en ég hef prófað góðar bremsur með mismunandi diskum þ.a. það er erfitt að segja…
Þetta er alveg rétt sem afi er að segja. Ég hef nú samt heyrt frekar talað um að wheelsettin séu ekki nógu sterk til að höndla 8" disk og powerið sem honum fylgir. En eins og þú bendir á þá er meira traction vandamál með afturdekkið heldur en með framdekkið og því er minni hætta á að þetta hafi áhrif á aftur-wheelsettið. Þ.e. ef þú værir að gera þetta með framdekk í stað afturdekks þá er meiri hætta á að wheelsettið gefi sig. Bætt við 2. apríl 2007 - 11:26 Þú getur líka auðveldlega farið...
Þetta er líka rétt hjá þér. Þú þarft að beita minni krafti á handfangið með puttanum/puttunum ef þú ert með stóran disk heldur en ef þú ert með minni disk… Smá eðlisfræði: Ef þú reiknar vægið sem hvor stærð af diski gefur þér (8“ og 6”) þá fær maður það út að þú þarft að beita 25% minni krafti á handfangið með 8“ disk heldur en með 6” disk.
Á sumum stellum er calipernum mountað beint á stellið fyrir 6“ disk en ef menn vilja nota 8” þá þurfa þeir adapter. Það var það sem ég var að reyna að segja. Ég er ekki viss með 7", en ég er lítið í búðunum hér á íslandi, versla í útlöndum…
Held það séu nú meir líkur á því að þú þurfir adapter fyrir caliperinn svo að hann passi á brúnina á disknum. Ég er samt ekki búinn að kynna mér hvernig þetta er akkúrat á þessu hjóli en það er mitt fyrsta gisk. Bætt við 1. apríl 2007 - 14:53 Af hverju prófaru ekki bara að setja hann á? Þá sérðu um leið hvort hann passar eða ekki…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..